Munaðarnes-svæði.
Tilvalið fyrir þá sem búa á svæðinu eða dvelja í bústað. Stakur dagur í veiði.
Þarna er veitt á 3 stangir og höfum við verið með tilboð í gangi sem er þannig að þú greiðir fyrir 2 stangir en mátt veiða á 3 stangir. Dagsveiði. Veitt frá morgni til kvölds með hléi milli kl 13.00 og 16.00. Skemmtilegt og aðgengilegt svæði. Góð verð. Ekki er gisting í boði en hentugt fyrir gesti í Munaðarnesi og Sviganskarði eða Stóru Skógum og sumarhúsafólki í Borgarbyggð.
Allar upplýsingar gefur Einar Sigfússon og er netfangið einar@nordura.is eða í síma 8939111.