Skrifað 11/07/2015
Í kvöld braut Norðurá áttahundruð laxa múrinn og er áin nú komin í 805 laxa. Veiðimenn njóta sín á bökkum árinnar og lax er stökkvandi út um allt. Skiptir ekki máli hvort um er að ræða Norðurá I eða Norðurá II, alls staðar er nóg af fiski sem er í góðu tökustuði. Það er því skemmtilegt að vera veiðimaður við Norðurá þessa dagana.