Skrifað 01/08/2015
Í lok vaktarinnar á hádegi í dag, laugardag 1. ágúst kom í ljós að Norðurá er komin í 2000 laxa þetta sumarið. Það eru mikil gleðitíðindi. Á sama tíma berast einnig fregnir af nýjum göngum, lúsugir fiskar voru að veiðast í morgun og í gærkvöldi. Þessu gjöfula sumri er sannarlega ekki lokið