Sauna veiðihússins er tilbúin til notkunar.
Skemmtileg lýsing er í baki yfir setbekkjum sem eru rúmgóðir. Nýr ofn er fylltur steinum. Fyrir framan saununa eru sturtur og snyrting. Einnig bekkur og snagar fyrir sloppa og handklæði.
Aðgengi að saunu er um dyr við enda herbergja-gangs. Hægt verður að ganga út úr sauna rýminu og njóta náttúru svæðisins.
Ljósm. Sigrún Ása Sturludóttir