Laxveiðin í Norðurá er komin í 1.230 laxa í sumar og var síðasta holl með 80 laxa. Enn eru að veiðast lúsugir fiskar en smástreymt var 19. júlí en nú er stækkandi straumur.
Binda menn nú vonir við að nýjar og góðar göngur skili sér í kringum stórstreymið sem verður 29. júlí.
Fiskur hefur dreift sér um dalinn en sökum vatnskulda og mikils vatns gekk laxinn mjög hægt upp ánna. Úr þessu hefur nú ræst.
Norðurá er svo gott sem uppseld Áin er nú í 13.5 rúmmetrum sem kalla má gullvatn.
Áhugasamir hafi samband við einar@nordura.is eða í síma 893 9111.