Norðurá er núna komin í 1.330 laxa, fallegt vatn er í ánni og er veiðivon um alla á.
Stórlaxar hafa veiðst margir í sumar og veiðin oft verið spennandi. Flestir laxar hafa verið um 55-65 cm langir eða um 880 laxar. Yfir 160 laxar af stærðargráðu 70 til 90 cm og það sem af er sumri hafa veiðst 11 laxar sem voru yfir 90 cm þar af einn sem náði 97 cm lengd. Hinn 23. ágúst veiddist til dæmis 89 cm Maríulax úr Myrkhyl og leiðsögumaður var Rúnar Gíslason.
Áhugasamir hafi samband við einar@nordura.is eða í síma 893 9111.