Norðurá býður gleðilegt nýtt ár kæru veiðimenn og konur.
Veturinn er loks kominn eftir milt haust. Mikil flóð hafa verið í ám og lækjum en nú hafa safnast upp snjóalög.
Meðal veiðimanna ríkir talsverð bjartsýni fyrir komandi sumri og byggja menn þar á ýmsu. Sú skoðun heyrist gjarnan, og þá með skírskotun í kenningar Jóns Kristjánssonar, að síðustu tvö vor voru þokkalega hlý og því líklegra að seiðin sem gengu til hafs þau vor/sumur hafi verið vel haldin og líkleg til að bjarga sér. Síðan er það sem miklu ræður og það er að skilyrði í hafinu virðast hafa verið góð.
Með hækkandi sól byggist spenna upp meðal veiðimanna sem fer vaxandi fram í sumarbyrjun. Núna á Þorranum sökkva menn/konur sér niður í veiðibókmenntir og ylja sér við gamlar og góðar minningar af bökkum ánna.
Ljósmynd og texti: Sigrún Ása Sturludóttir.
Allar upplýsingar um veiðileyfi gefur Einar Sigfússon og er netfangið einar@nordura.is eða í síma 8939111.