Norðurá I
Norðurá I Norðurá II Fjallið Munaðarnes Flóðatangi Kort af Norðurá Veiðivísir VeiðvörðurVeiðisvæði Norðurár I tekur breytingum yfir sumarið.
Frá 4. júní
(hádegi) nær veiðisvæðið frá og með neðri Engjahyl og upp að
brú við Fornahvamm. Frá 6. júlí (hádegi) nær veiðisvæðið frá Engjanefi
við Munaðarnes til og með Hvammsleiti.
Frá 1. september og til loka
veiðitímans 15. sept. nær veiðisvæðið frá Engjanefi og að Króksfossi.
Vinsamlegast athugið að Veiðiréttareigendur við Norðurá hafa samþykkt fyrirmæli Veiðimálastofnunar, VMST, um að skylt sé að sleppa tveggja ára laxi sem er yfir 70 cm. Þetta er gert í því augnamiði að vernda stórlaxastofn árinnar.
Kvóti í Norðurá er 1 lax á stöng á dag.
Vinsamleg tilmæli til allra veiðimanna er að sleppa öllum veiddum laxi og einkum hrygnum.