Veiðihúsið Háreksstöðum
Veiðihúsið Rjúpnaási Veiðihúsið HáreksstöðumVEIÐHÚSIÐ HÁREKSSTÖÐUM ( Norðurá II).
Íbúðarhúsið á Hárekstöðum þjónar nú hlutverki veiðihúss. Veiðimenn sem stunda veiðar í Norðurá II hafa þarna mjög fína aðstöðu. Gert er ráð fyrir því að veiðimenn sjái um sig sjálfir og komi með eigin mat.
Við komu er húsið hreint, uppbúin rúm og hrein handklæði. Veiðimenn þurfa ekki að þrífa húsið við brottför, einstaklingur úr sveitinni sér um það ásamt því að skipta á rúmum og setja hrein handklæði. Þessi þjónusta er innifalin í verðinu. Í húsinu er eldhús með borðstofu og setustofa ásamt borðbúnaði og eldunaráhöldum. Baðherbergi er með sturtu. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, 2 tveggja manna og 2 einstaklingsherbergi.
Gasgrill, bekkir og borð eru á ágætis útipalli.