Fyrsta skóflustungan að nýrri svefnálmu við aðalveiðihúsið við Norðurá var tekin í dag, sunnudaginn 4. september 2016. Það voru fyrrverandi og núverandi formaður veiðifélagsins, Sigurjón Valdimarsson Glitstöðum og Birna G. Konráðsdóttir Borgum, sem hófu framkvæmdir á þennan táknræna hátt. Framkvæmdum á að vera lokið fyrir veiðitíma næsta sumars, eða 1, maí 2017. Verktaki er EJI. ehf. Ljósm. Kristmann Magnússon.
Skrifað 05/09/2016